35 vikur

Jæja þá eru 35 vikur liðnar af þessari meðgöngu og bara 3 vikur eftir ef það stenst að ég verði sett af stað í 38. viku. Ég vil nú samt helst fara sjálf af stað og hef nú þegar gert ráðstafanir til þess, er að flytja út Gunna sem kemur á mánudag...ef flugfélagið verður ekki farið á hausin áður ;) Ég er ekkert viss um að hleypa honum á klakkann aftur, ég keypti bara miða aðra leiðina fyrir hann. Mér finnst sko að hann geti alveg lært að veiða á dönsku!!

Það er annars frekar rólegt hér. Ég stækka, og Andri og Anja líka ;) Þau bíða auðvitað líka spennt eftir því að pabbi komi loksins til okkar, enda var hann hér síðast í ágúst byrjun!!

Læt hér eina mynd fylgja af bumbunni, hún var tekin áðan í tilefni af 35 vikunum ;)

From 2008-11-08

7 Comments:

  1. Unknown said...
    Flugfélagið er farið á hausinn, Ísland er líka farið á á hausinn, en ég á flottu konu í heimi.
    G.Bender
    Anonymous said...
    Flott kona, bumban þín er algjört æði.
    Knús Rós
    Anonymous said...
    Þá er ekkert annað að gera hjá þér Gunni minn en að synda því Þórunn er um það bil að farast úr spenningi :)
    Góða ferð.......og góða heimkomu ;)
    Anonymous said...
    Þú lítur vel út, vona að Gunni sé kominn í hlaðið nú þegar.
    kv,
    gugga
    Anna Leif said...
    kveðja úr Brekkó
    Anonymous said...
    ENGAR FRÉTTIR???????????
    Er kallinn á jeppanum komin til þín??
    Hafið það bara sem best og farðu vel með þig Þórunn mín.
    Knús á línuna Rós
    Anonymous said...
    Þú ert flott með bumbuna þína Þórunn. Svo styttist nú óðum í skottuna...spennó! Takk annars fyrir lánið á karlinum um daginn...fínt að getað deilt þeim svona þegar við þurfum á að halda.

    Knús
    Dísa

Post a Comment



Blogger Template by Blogcrowds