22. des

Já það er víst komin 22. desember og yngsti fjölskyldumeðlimurinn er 3gja vikna í dag! Ótrúlegt alveg hvað tíminn æðir áfram!

Hér er eiginlega ekkert jólalegt! Enginn snjór, hávaða rok, við erum ekki búin að fá okkur jólatré eða jólaskraut, en gerum það á morgun, vonandi...

Annars dafna allir bara vel ;) Anja er búin að opna allt súkkulaðidagatalið sitt í von um að jólin komi fyrr....Gunni er búin að fá jólabærkurnar í pósti.....Andri hangir í tölvunni og ég prjóna ;) Sem sagt allt í fína hér ;)

Gleðileg jól !!

Já það er ótrúlegt en á þessum degi fyrir 4 árum fengum við hana Önju okkar!! Ég man það eins og það hafi gerst í gær...það var alveg ótrúleg tilfinning að horfa á þessa grátandi mús í fanginu á starfsmanni barnaheimilisins, vitandi það að þessi stelpa væri sko okkar!!

Í tilefni dagsins tókum við upp dásamlegan lambahrygg...dýrðmæti sem er sko sparað til tyllidaga. Með honum var sko ekki síðra meðlæti, ora grænar baunir, rabbabarasulta á la Sirrý, rauðrófur og svo piparostasósa úr ekta íslenskum piparosti!! Ummmmm dásamlegt bara!!

Jæja, þá erum við komin heim, loksins!!

Eins og þið vissuð þá fórum við Gunni til Odense á sunnudaginn til að fara í gangsetningu á mánudagsmorgninum en þegar ég mætti á mánudaginn þá var ég komin með 4 í útvíkkun þannig að það var ákveðið bara að sprengja belginn. Það var svo gert kl 15.

Ég var búin að ákveða að þar sem ég mátti ekki nota baðið sem "verkjalyf" þá vildi ég fá mænudeyfingu, ég er ferlegur ketlingur þegar kemur að sársauka...sérstaklega þeim sem tengist móðurlífi... Hún var svo sett upp um kl. 17 en þá voru verkirnir orðnir nokkuð þéttir...

Við mænudeyfinguna duttu hríðarnar niður....eins og oft gerist og það var sett upp dripp hjá mér kl 18 til að herða á þeim. Um kl. 21 var ég komin með fulla útvíkkun og farin að finna all hressilega fyrir verkjum, þar sem $%&#$% deyfingin virkaði bara öðru megin!! Þetta hafði líka gerst þegar ég átti Andra og þá var þetta "lagað" í kvelli.....en blessuðum nemanum sem var með mig fannst ekki ástæða til að gera neitt, sama hvað ég sagði....Ég var því orðin frekar reið og pirruð þegar önnur ljósa kom, krafðist þess að fá meiri deyfingu....sem ég fékk auðvitað...en hún virkaði bara ekkert.....en svo fæddist þessi líka yndislega skotta okkar rétt fyrir kl. 23

Hún olli smá skrekk á stofunni, þar sem hún gaf ekki frá sér neitt hljóð allan tíman sem við vorum þarna...2 læknar komu og skoðuðu hana til að vera vissir um að allt væri í lagi...hún fékk súrefni í töluverðan tíma en svo fékk ég hana í fangið, þessa elsku

Við vorum góða stund í fæðingarherberginu, fengum bakka með kaffi, djús, vatni ristuðu brauði, skreyttu með danska fánanum LOL og ýmsu áleggi. Það var svo rosalega vel þegið og við réðumst á þetta eins og hungraðir úlfar!!

Síðan var okkur trillað inn á vökudeild, þar sem við mæðgur þurftum að vera í eftirliti út af blóðsykrinum. Dvölin þar var í alla staði frábær!!

Starfsfólkið hvert öðru yndislegra, ótrúlega hjálpsamt allt saman og ég á bara ekki orð yfir þjónustunni þarna!! Nú hef ég náttúrulega bara samanburð við færibandið á LSP sem ég gaf falleinkun fyrir 14 árum nú og ég hef ekki heyrt neitt mjög góðar sögur af vökudeildinni, þeas, aðstöðu fyrir foreldra......(er samt viss um að staffið þar er frábært!!)

Við mæðgur vorum í svolitlu brasi með brjóstagjöfina, báðar algerlega óreyndar á þessu sviði og litla hljóðláta konan mín sko með þeim óþolinmóðustu þegar kom að því að taka geirvörtuna!! Hún lætur sko í sér heyra þegar hún þarf að láta skoðun sína í ljós!! En konurnar á deildinni voru svo ákveðnar við hana að smám saman áttaði hún sig á að það þýddi ekkert að öskra á vörtuna, hún varð að sækja hana sjálf, hehehe!

Við vorum svo loksins útskrifaðar í dag, Helga kom og sótti okkur og hér erum við bara að hugga okkur við kertaljós (Það er svo kalt!!), ekki lengur litla fjölskyldan, heldur 5 manna stórfjölskylda!!

Við erum búin að nefna dömuna, hún heitir Hafrún Ása. Önju finnst nú þetta Hafrúnar nafn ómögulegt, hún segist ekki geta munað það og vill skipta!! en Ásu nafnið ágætt.......Hún var að reyna að semja um skipti í kvöld og stakk upp á að hún mundi bara heita Dísa Ása Lin!! LOLOLOLOL

From 2008-12-04


Það eru svo fleiri myndir inni á myndasíðunni sem þið komist í þarna í flipanum efst ;)

Blogger Template by Blogcrowds