Óvelkominn laumufarþegi!

Já það var heldur betur fjör hjá Andra áðan þegar hann dreif sig loksins í að tæma töskuna......það spratt fram feitur og pattarlegur kakkalakki! Já honum hafði langað til að breyta til og er nú ólöglegur innflytjandi hér í Danmörku! Ég á frekar von á því að hann verði tekinn af lífi án dóms og laga....kanski með þessari aðferð sem þeir nota í Íran.....kastað fyrir björg....en það gengur kannski ekki þar sem það eru engin björg hér...

Kvikindið var semsagt handsamað í dós og dúsir þar ásamt nokkrum hrísgrjónum sem Andri kastaði til hans...enda skepnan örugglega svöng eftir langa dvöl í töskunni! Hann var þó með nesti með sér....ja eða vin sinn......en hann át hann á leiðinni og af honum fannst ekkert annað en tóm skelin - er ekki annars búið að réttlæta át á sínum líkum við extreem aðstæður?

Andri ætlar svo með þetta í skólann á morgun...Ég tók nokkrar myndir, en það er frekar erfitt, og ekki ætla ég að fara að taka lokið af dósinni, svo mikið er víst!!!

2 Comments:

  1. Anonymous said...
    Mér finnst að þú eigir að geyma dýrið, þangað mamma þín kemur næst og taka þá sama af lokið mæðgurnar. Báðar mikið fyrir svona dýr.
    Ég hef oft heyrt öskur en aldrei eins og dag þegar ég hringdi, í ANDRA og ÍSAK þegar þeir voru að reyna að veiða DÝRIÐ..............
    Þórunn said...
    ahahahahhahah já ég er viss um að þú ert að tala um Andreu og Ísöku LOLOLOL

Post a Comment



Blogger Template by Blogcrowds