13.11.07

Ja það er ekki laust við að gömul tilfinning hafi læðst að manni í dag eftir hasar dagsins! Java kennarinn snappaði í morgun, vægt til orða tekið og bara grýtti mér út úr tíma! Það er bara svona eins og maður sé kominn í 7. Bekk aftur – svei mér þá!!!!

Hann byrjað á að þruma yfir okkur að hér eftir yrði skólastofunni læst! Þetta væri sko ekki neinn menntaskóli þar sem hægt væri að mæta þegar manni sýndist...og hér eftir skyldu allir koma á réttum tíma og ekkert múður! Ég sagði að mér finndist þetta pínu menntaskólalegt já eða leikskólalegt að læsa svona hurðinni...en hann var ekki sammála og æsti sig helling. Síðan kom hann að blessaða prófinu sem við tókum í síðustu viku..það var víst ekki eins og hann vonaðist til og hann bara drullaði yfir bekkinn í heid sinni yfir því hvað við værum léleg og ég veit ekki hvað og hvað...ég gat auðvitað ekki þagað (enda ekki fræg fyrir að taka skítkasti!!!) og sagði að mér fyndist þá eitthvað benda til þess að kennslunni væri ábótavant fyrst við værum öll svona léleg! Hann bókstaflega snappaði! Sagði mér að ef ég væri eitthvað óhress með kennsluna þá gæti ég bara farið og kvartað við Paul (sem er yfir deildinni) – en ég hefði nú ekki neitt efni á að kvarta því ég hefði verið svo lág á prófinu...(dööö) og svo ætti ég að fara að mæta betur!

Ég benti honum á að stundum gæti maður ekki mætt...ég ætti börn sem stundum væru veik og þá gæti ég bara ekki komið...hann sagði að ég ætti bara að redda því! En ég sagði að það væri ekki svo auðvelt þar sem ég væri nú ein...en honum var alveg sama um það. Hann hélt áfram að ausa úr sér yfir mig...var farinn að öskra á mig að ég skyldi bara drulla mér út og finna mér annað að gera, ég væri svo heimsk!! Ég sagði honum að mér finndist nú heimskulegt af honum að tala svona, en guð hvað ég var orðin reið! Ég pakkaði auðvitað niður og fór út, en þakkaði honum í huganum fyrir að gefa mér þetta fína tækifæri til að kæra hann formlega....ég er ekki búin að fá frið fyrir honum síðan ég byrjaði, hann er þvílíkur ruddi! Ég eiginlega næ ekki upp í það hvað hann leyfið sér að vera dónalegur! Ég hefði haldið að það að kalla nemanda heimskan væri síðasta sort!

Ég ætla að mæta í tíma hjá honum á morgun....enda of heimsk til að taka svona hinti!!

 
 

Og ja, Peter, hvis du læser det her, så er det du som er dum men ikke jeg!! ;-)

3 Comments:

  1. Hrund said...
    helvítis djö, var búin að skrifa heila færslu hér í komment en hvað gerist! hún HVARF! en í stuttu máli þá:
    já hann tekur sitt vonda skap með í vinnuna og hef ég alveg fengið að kenna á því.
    Og komdu nú of seint einu sinni enn,bankaðu og opnaðu svo með lyklinum!!!
    Anonymous said...
    Áfram - ekki láta valta yfir þig! Mamy
    Anonymous said...
    Stattu þig stelpa!
    kv,
    gugga

Post a Comment



Blogger Template by Blogcrowds