Afmælisveislan...

Mín var í formi kaffiboðs hjá Helgu þar sem hún bauð upp á eplaskífur að dönskum sið...ómæ hvað þær voru góðar!!

Annars er lítið að frétta, var í drulluerfiðu 4 klst prófi í forritun í dag og hef ekki hugmynd um hvernig mér gekk....

Annars sendi Helga mér þennan skemmtilega texta áðan.....best er að lesa hann upphátt! ;-)

Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún
var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.
Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim. Þarna voru Lind Ýr,
Líf Vera, Sól Hlíf, Ævar Eiður og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom
blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester
fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.
Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar -
"#%=&#$&/(=!z#$!/!=! Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru
greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín? Fyrir utan var Sædís Líf í
rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum.
Hún var orðin alltof sein í afmælið.

4 Comments:

  1. Anonymous said...
    Hún á afmæli í dag..............
    Til hamingju!!!!!!!
    Þetta er nú meira ruglið sem þú skrifar en hér var haldin afmælisveisla þér til heiðurs með dýrindis saltfiskrétti - þú smakkar hann seinna!!!!!!
    Mamy!!!!
    Þórunn said...
    Takk takk!! Verst hvað þú eldist alltaf á þessum degi!! lololol en hvernig væri nú að senda manni uppskrift??
    Anonymous said...
    Ég er að vinna í því!!!!!
    Anonymous said...
    Takk fyrir síðast og takk fyrir linkinn á metallica. Það var hækkað aðeins í hátölurunum. Gef þér nýjan link!

    http://www.youtube.com/watch?v=h5zNK--DUDg

    Hækka í hátölurunum! Skildi reyndar þetta líka eftir í gestabókinni minni handa þér :D

    Og ég á enn eftir að setja linkinn á þitt blogg...

    Og svo vildi ég líka segja... nei andskotinn.. nú hringi ég bara í þig :D

Post a Comment



Blogger Template by Blogcrowds